Þráður
Má ekki leysa þungaflutningana með loftskipum? Skoðanir óskast.
Dagsetning:
11. júní 2008 kl: 0:03
Höfundur: Jónas GuðmundssonFyrir nokkrum misserum skrifuð nemendur við Háskólann á Bifröst lokaritgerð um kosti loftskipa til að annast samgöngur milli lands og Eyja. Sjá nánar hér http://www.samgongur.is/?PageID=464&NewsID=2368
Var ekki annað að sjá en dæmið liti vel út.
Nokkrir aðilar smíða loftskip sem ekki verður annað séð en séu prýðis vel fallin til flutninga milli landshluta í flestum veðrum. Sjá t.d.
http://www.worldskycat.com - http://www.21stcenturyairships.com - http://www.dynalifter.com/
Hvernig væri nú að stofna Loftskipafélag Íslands hf. til að undirbúa þessa hugmynd?
Svör: 1
Spurning um áhrif vinda ?
eftir Morten Lange þann 16. september 2008 kl: 16:58
Einhver nefndi við mig að loftskip henta þar sem vindar séu ekki of miklar. Nú sé ég fullyrt í fréttinni sem vísað var í, að loftskipin eiga að þola erfið veður jafn vel og jafn illa og breiðþota. En er þetta í alvöru hliðstætt ?
Breiðþota getur væntanlega flogið út úr vályndu veðri, sem kemur upp fyrirvaralaust, en loftskip eiga sennilega erfiðara með það ? Vefsíða SkyCat segir að skipið sé svo þungt að það mun sigla í loftinu um það bil eins og stórt flutningaskip á höfunum.... En þetta er jú fólkið sem er að reyna að selja lausnina sem eru að tala...
Annars mjög áhugaverð hugmynd. Hélt samt að sparnaðurinn í eldsneyti væri meiri (Sá talan 50% að ég held ?)