Frétt

Sturla Böðvarsson á vefnum Skessuhorn | 18.01.2008

Aukið öryggi í umferðinni er þjóðarnauðsyn eftir Sturlu Böðvarsson

Stjórnsýsla umferðaröryggismála flutt til samgönguráðuneytis

 

Það var mat ríkisstjórnarinnar á síðasta kjörtímabili að eðlilegt væri að tengja saman stjórnsýslu umferðaröryggismála og vegamálin innan samgönguráðuneytisins.

Þegar samgönguráðuneytið tók við umferðaröryggismálum 2004 af ráðuneyti dómsmála var ákveðið að breyta áherslu í umferðaröryggisáætlun og tengja hana samgönguáætlun. Á vettvangi dómsmálaráðuneytis, Umferðarráðs og Umferðarstofu hafði verið unnið mikið starf árum saman sem auðveldaði þá breytingu sem gerð var og skapaði skilyrði til þess að taka umferðarmálin nýjum tökum á vettvangi samgönguráðuneytisins. Var þessi breyting gerð í góðu samstarfi ráðuneytanna og við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vorum sammála um þessa breyttu skipan.

 

Breytingar mótaðar á nýjum forsendum

Ég tók þá ákvörðun að láta móta breytingarnar á öllum sviðum  umferðaröryggismála. Þar var um að ræða vinnu Umferðarstofu, Umferðarráðs, Vegagerðar, Rannsóknarnefndar umferðarslysa og ráðuneytisins.  Til þess að ná þeim markmiðum sem sett voru var ráðinn verkfræðingur til starfa í samgönguráðuneytinu sem undirbjó nýja umferðaröryggisáætlun sem er tengd samgönguáætlun eins og fyrr segir og hefur tekjur frá henni. Jafnframt var lögfræðingum ráðuneytisins falið að vinna að breytingum á reglugerðum og undirbúa breytingar á löggjöf er snerti þennan mikilvæga málaflokk í samstarfi við Umferðarstofu, Vegagerð og lögregluna. Fræðilegar forsendur  við nýja umferðaröryggisáætlun tengdust mati á kostnaði við slysin og kostnaði við nauðsynlegar aðgerðir.

Til þess að ná tilgreindum markmiðum var m.a. unnið að  eftirfarandi aðgerðum er allar höfðu það markmið að draga úr slysum í umferðinni:

 

1.                  Rannsóknir umferðarslysa endurskipulagðar og efldar með nýrri löggjöf um Rannsóknarnefndina. Voru hafðar til hliðsjónar þær  miklu breytingar sem gerðar voru á vettvangi flugöryggismála og rannsóknum flugslysa og höfðu gefist vel.

2.                  Umferðarlögum og reglugerðum var  breytt til að auka ábyrgð ökumanna .

3.                  Umferðaröryggisáætlun unnin og forgangsröðun gerð miðað við áætlaðan ábata hverrar aðgerðar.

4.                  Umferðaröryggisáætlun felld inn í samgönguáætlun og tekjur af umferðinni nýttar til framkvæmda og kostnaðar við aukið umferðareftirlit.

5.                  Samningar um stóraukið umferðareftirlit gerðir milli Vegagerðar, Umferðarstofu og Ríkislögreglustjóra. Má segja  að þeir samningar hafi markað tímamót og skapað lögreglu og Vegagerð nýja viðspyrnu til árangursríkra aðgerða.

6.                  Settar upp myndavélar við þjóðvegina til þess að auka eftirlit með hraðakstri og margvíslegur búnaður lögreglu kostaður af útgjaldaramma samgönguráðuneytis.

7.                  Eftirlit Vegagerðar og lögreglu aukið með fólks- og vöruflutningum á þjóðvegunum og settar strangar reglur um meðferð farms flutningavagna.

8.                  Lagarammi um eftirlit með hvíldartíma ökumanna tryggður í samræmi við evrópskar reglur sem höfðu ekki verið að virka vegna skorts á lagaheimildum.

9.                  Heimildir settar í lög til þess að auðvelda lögreglu eftirlit með ólöglegri fíkniefnanotkun ökumanna.

10.              Hertar reglur um gerð og búnað ökutækja.

11.              Lögum og reglugerðum breytt og viðurlög aukin vegna ofsaaksturs á þjóðvegum og vegna endurtekinna brota á umferðarlögum.

12.              Tekið upp samstarf við FÍB um skoðun á gerð og ástandi vega frá sjónarhorni öryggisþátta svo sem frágangi vegriða og umhverfi vega.

13.              Auknir fjármunir veittir til vegagerðar, jarðgangagerðar, vetrarþjónustu, upplýsinga um færð og ástand vega og almennrar þjónustu á vegakerfinu í þágu umferðaröryggis.

 

Aðgerðir skila árangri

Breytt skipulag og allar þessar aðgerðir á vettvangi lögreglu, Umferðarstofu, Vegagerðar og samgönguráðuneytis eru að skila árangri. Ástæða þess að ég skrifa þessa grein er að ég taldi nauðsynlegt að minna á það hversu umferðaröryggismálin eru mikilvæg og einnig vil ég minna á að ekki voru þessar aðgerðir allar sem nú eru að skila árangri taldar nauðsynlegar eða skynsamlegar þegar til þeirra var stofnað. Varð undirritaður að verjast harkalega bæði á Alþingi og í fjölmiðlum til þess að ná fram þessum nauðsynlegu breytingum. Það er ástæða til þess að þakka öllum sem koma að umferðaröryggismálum fyrir árangurinn. Það hefur tekist að hægja á umferðinni og ökumenn sýna aukna ábyrgð í umferðinni. Með  samstilltum aðgerðum hefur tekist að fækka slysum sem engu að síður eru of mörg . Auknu  öryggi í umferðinni ber að fagna og við eigum að sameinast um þær aðgerðir sem geta leitt til færri slysa. Til þess að frekari árangur náist þarf þjóðarátak.  Þess er vert að geta að Suðurnesjamenn með Steinþór Jónsson athafnamann og bæjarfulltrúa  í broddi fylkingar hafa sýnt mikið og þakkarvert frumkvæði í umferðaröryggismálum. Ég hvet áhugafólk um aukið umferðaröryggi í öllum landshlutum til að kynna  sér starf þeirra undir merkjum  ,,Samstöðu.“

 Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og 1. þingmaður NV kjördæmis.

Orðrétt heimild:  Grein á vefnum Skessuhorn, www.skessuhorn.is


Til baka | Prenta

Veður

Veðurstofa Íslands

Veðrið kl.

Könnun

Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að ríkið styrki strandsiglingar til að draga úr þungaflutningum á vegum.






Blogg á vef Morgunblaðsins, www.mbl.is
Um samgöngur
Um bíla og akstur 

Aðrar samgöngur

Flugfélög - innanlandsflug
Flugfélag Íslands
Flugfélagið Ernir
Mýflug (á ensku)
Eyjaflug
Flugfélagið Geirfugl
Norðurflug
Suðurflug (á ensku) 

Flugfélög - utanlandsflug
Atlanta
Icelandair
Iceland Express
Bláfugl (vöruflutningar)

Flugvellir innanlands
Sjá vef Flugstoða

Ferjur
Herjólfur
Breiðafjarðarferjan Baldur
Hríseyjarferjan Sævar
Grímseyjarferjan Sæfari 
Norræna

Flutningar á sjó - millilanda
Eimskip                                                                 
Atlantsskip
Samskip

Almenningssamgöngur á landi
Strætó á höfuðborgarsvæðinu
Ferðaþjónusta fatlaðra
Akranes
Ísafjarðarbær
Akureyri                                                                    
Fljótsdalshérað                                 
Reykjanesbær
Flugrútan (Kefl.v.flugv.)
SBA-Norðurleið
SBK-Reykjanesbær
Vesturland (Trex)
Norðurland (Trex)
Austfirðir (Austfjarðaleið)
Austurleið (Selfoss o.fl.)

Vefir sem miðla ferðaupplýsingum
Samferða.net
Farþegi.is

Leigubílar
BSR
Hreyfill
Skutlan

Bílaleigur
Alp bílaleiga
Átak bílaleiga
Avis - bílaleiga
Bílaleiga Flugleiða Hertz
Budget bílaleiga
Europcar bílaleiga
Bílaleiga Akureyrar

Flutningar á landi
Flytjandi
Íslandspóstur
Landflutningar

Samgöngumiðstöðvar o.fl.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Bílastæði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Bifreiðastöð Íslands (Umferðarmiðstöðin)
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
Hvalfjarðargöng (Spölur hf.)
Faxaflóahafnir
Hafnarfjarðarhöfn   
Hafnir Ísafjarðarbæjar

Samgöngumannvirki í uppbyggingu
Bakkafjöruhöfn (Vestmannaeyjar)
Héðinsfjarðargöng 
Hringvegur við Hornafjörð
Miklabraut / Kringlumýrarbraut 
   - skýrsla um framtíðarlegu 
Reykjavíkurflugvöllur
   - skýrsla um framtíðarlegu 
Sundabraut

Ganga, hjólreiðar o.fl.
Samtök um bíllausan lífsstíl
Ganga.is
Landssamtök hjólreiðamanna
Hjólreiðafélag Reykjavíkur
Hjólamenn.is

 

 

 

 

 

Færð á vegum

Leita

Leitarvél

Flug frá Keflavík | Brottfarir

FI54207:40Paris Charles De Gaulle
FI45007:40London Heathrow
FI20407:45Copenhagen
FI53207:20Munich Franz Joseph Strauss In
FI50207:55Amsterdam Schiphol
FI31807:50Oslo Gardermoen

Textavarp

Flug til Keflavíkur | Komur

SK478710:50Oslo Gardermoen
AEU50213:50London Gatwick
AEU90214:10Copenhagen
FI79314:30Liege
FI45115:00London Heathrow
FI50315:10Amsterdam Schiphol

Textavarp

Flug frá Reykjavík | Brottfarir

Gat ekki lesið flugupplýsingar

Textavarp

Flug til Reykjavíkur | Brottfarir

Gat ekki lesið flugupplýsingar

Textavarp

Veldu ódýrasta flugið

Leiðakerfi Strætó

Nýtt leiðarkerfi

Bensínverð


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli