Frétt

Grein eftir Elías Jónatansson, bæjarfulltrúa í Bolungarvík á vefnum Víkari.is | 24.01.2008

Fært til Bolungarvíkur

 

Elías Jónatansson
Jarðgöng til Bolungarvíkur eru að verða að veruleika. Á þriðjudaginn voru opnuð tilboð í rúmlega 5 km löng jarðgöng á milli Hnífsdals og Bolungarvíkur. Miðbær Ísafjarðar er þá í seilingarfjarlægð frá Bolungarvík, en þangað verður ferðatíminn innan við 10 mínútur í bíl, á öruggum vegi. Óshlíð sem liggur á milli Bolungarvíkur og Hnífsdals hefur um aldir verið Bolvíkingum farartálmi, en á leiðinni eru nokkrar ófærur sem erfitt var að fara um gangandi, áður en vegur var lagður um hlíðina. Það varð því mikil bylting í samgöngumálum Bolvíkinga þegar vegurinn var opnaður þann 12. október 1949. Vegurinn er þó langt frá því að vera hættulaus og hefur tekið sinn toll í ofanflóðum og er þar um að ræða hvoru tveggja snjóflóð og grjóthrun.

Frásagnir af slíku er m.a. að finna í nýútkomnu 2. bindi af sögu Bolungarvíkur. Þessar aðstæður hafa óneitanlega sett mark sitt á mannlíf í Bolungarvík og hafa ennfremur gert það að verkum að margir ferðast ekki á milli staða nema brýna nauðsyn beri til. Oft fylgir því ónotaleg tilfinning að vita af sínum nánustu ferðast um Hlíðina þegar veður eru válynd, en það er nokkuð sem foreldrar þurfa að sætta sig við á meðan börn þeirra sækja skóla til Ísafjarðar. Hlíðin hefur líka oft sett strik í félagslíf bæði bolvískra og ísfirskra unglinga sem hugðust sækja sömu skemmtun, íþróttamót eða aðra uppákomu í öðruhvoru byggðarlaginu.

Jarðgöngin eru önnur bylting í samgöngumálum Bolvíkinga, 60 árum á eftir hinni fyrri, og eru langstærsta framkvæmd sem ráðist hefur verið í á Vestfjörðum eftir að Vestfjarðagöngin voru opnuð. Þótt geta megi sér til um áhrif af slíkum samgöngubótum, þá eru þau engan veginn fyrirséð, en gert er ráð fyrir að umferð nálgist þúsund bíla á dag þegar göngin verða komin í notkun, sem er aukning um 50%. Þetta eitt og sér sýnir glöggt hver áhrifin væntanlega verða á mannlíf og búsetuskilyrði.

Þegar tilboð höfðu verið opnuð kom í ljós að lægsta tilboðið var næstum hálfum milljarði undir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar, sem auðvitað er sérlega ánægjulegt. Framkvæmdin er þó gríðarlega stór þar sem verktakakostnaður er tæpir 3,5 milljarðar, en reikna má með að annar kostnaður við hönnun og eftirlit verði nálægt hálfum milljarði. Það liggur því fyrir að framkvæmdin mun hafa mikil jákvæð áhrif á atvinnulíf á svæðinu næstu árin.

Sú jákvæða umræða og stuðningur sem framkvæmdin hefur fengið um allt land er okkur Bolvíkingum mikil hvatning. Þá er það okkur sérstakt gleðiefni að innan tíðar getum við sagt hvernig sem viðrar, að fært sé til Bolungarvíkur.

Elías Jónatansson, bæjarfulltrúi í Bolungarvík.
 

Til baka | Prenta

Veður

Veðurstofa Íslands

Veðrið kl.

Könnun

Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að ríkið styrki strandsiglingar til að draga úr þungaflutningum á vegum.






Blogg á vef Morgunblaðsins, www.mbl.is
Um samgöngur
Um bíla og akstur 

Aðrar samgöngur

Flugfélög - innanlandsflug
Flugfélag Íslands
Flugfélagið Ernir
Mýflug (á ensku)
Eyjaflug
Flugfélagið Geirfugl
Norðurflug
Suðurflug (á ensku) 

Flugfélög - utanlandsflug
Atlanta
Icelandair
Iceland Express
Bláfugl (vöruflutningar)

Flugvellir innanlands
Sjá vef Flugstoða

Ferjur
Herjólfur
Breiðafjarðarferjan Baldur
Hríseyjarferjan Sævar
Grímseyjarferjan Sæfari 
Norræna

Flutningar á sjó - millilanda
Eimskip                                                                 
Atlantsskip
Samskip

Almenningssamgöngur á landi
Strætó á höfuðborgarsvæðinu
Ferðaþjónusta fatlaðra
Akranes
Ísafjarðarbær
Akureyri                                                                    
Fljótsdalshérað                                 
Reykjanesbær
Flugrútan (Kefl.v.flugv.)
SBA-Norðurleið
SBK-Reykjanesbær
Vesturland (Trex)
Norðurland (Trex)
Austfirðir (Austfjarðaleið)
Austurleið (Selfoss o.fl.)

Vefir sem miðla ferðaupplýsingum
Samferða.net
Farþegi.is

Leigubílar
BSR
Hreyfill
Skutlan

Bílaleigur
Alp bílaleiga
Átak bílaleiga
Avis - bílaleiga
Bílaleiga Flugleiða Hertz
Budget bílaleiga
Europcar bílaleiga
Bílaleiga Akureyrar

Flutningar á landi
Flytjandi
Íslandspóstur
Landflutningar

Samgöngumiðstöðvar o.fl.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Bílastæði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Bifreiðastöð Íslands (Umferðarmiðstöðin)
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
Hvalfjarðargöng (Spölur hf.)
Faxaflóahafnir
Hafnarfjarðarhöfn   
Hafnir Ísafjarðarbæjar

Samgöngumannvirki í uppbyggingu
Bakkafjöruhöfn (Vestmannaeyjar)
Héðinsfjarðargöng 
Hringvegur við Hornafjörð
Miklabraut / Kringlumýrarbraut 
   - skýrsla um framtíðarlegu 
Reykjavíkurflugvöllur
   - skýrsla um framtíðarlegu 
Sundabraut

Ganga, hjólreiðar o.fl.
Samtök um bíllausan lífsstíl
Ganga.is
Landssamtök hjólreiðamanna
Hjólreiðafélag Reykjavíkur
Hjólamenn.is

 

 

 

 

 

Færð á vegum

Leita

Leitarvél

Flug frá Keflavík | Brottfarir

FI52007:25Frankfurt Main
FI54207:40Paris Charles De Gaulle
FI45007:40London Heathrow
FI20407:45Copenhagen
FI53207:20Munich Franz Joseph Strauss In
FI50207:55Amsterdam Schiphol

Textavarp

Flug til Keflavíkur | Komur

SK478710:50Oslo Gardermoen
AEU50213:50London Gatwick
AEU90214:10Copenhagen
FI79314:30Liege
FI45115:00London Heathrow
FI50315:10Amsterdam Schiphol

Textavarp

Flug frá Reykjavík | Brottfarir

Gat ekki lesið flugupplýsingar

Textavarp

Flug til Reykjavíkur | Brottfarir

Gat ekki lesið flugupplýsingar

Textavarp

Veldu ódýrasta flugið

Leiðakerfi Strætó

Nýtt leiðarkerfi

Bensínverð


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli