Frétt
Kristján Möller, samgönguráðherra | 05.02.2008
Bylting í sjónmáli með Bolungarvíkurgöngum
Bylting verður í samgöngumálum Vestfirðinga með jarðgöngum milli Bolungarvíkur og Hnífsdals. Bolungarvíkurgöng koma í stað vegar um Óshlíð þar sem margt er að varast, stórviðri og skriður með grjóthruni. Með göngum verður næsta auðvelt að ferðast milli Bolungarvíkur og annarra byggðarlaga í nágrenninu. Þessi bylting er nú í sjónmáli. Akstri um Óshlíð hefur alltaf fylgt nokkur áhætta. Vegsvalir, grjótvarnir, snjóflóðaskápar og aðrar varúðarráðstafanir hafa ekki komið í veg fyrir slys og oft hefur legið við slysum. Þegar Bolungarvíkurgöng eru komin í gagnið verður allt þetta að baki. Vegfarendur þurfa þá ekki lengur að velta fyrir sér hvort vegurinn um Óshlíðina sé flugháll, menn þurfa ekki að horfa sérstaklega til veðurs og velta fyrir sér hvort stórrigningar gætu hafa losað um jarðveginn. Nei, menn geta bara ekið af stað áhyggjulaust.
Bolungarvíkurgöng skulu þau heita
Ákveðið hefur verið að göngin verða kennd við Bolungarvík. Engin skýr regla er fyrir hendi um nafngiftir ganga á Íslandi. Þannig kallast göngin milli Reyðafjarðar og Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfjarðargöng, Strákagöng heita göngin gegnum Strákafjall en Héðinsfjarðargöng eru kennd við fjörðinn milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Bolungarvíkurgöng ganga í gegnum mun fleiri fjöll en Óshyrnuna eina. Þess vegna er eðlilegt að þau séu kennd við Bolungarvík enda er það yfirlýst markmið framkvæmdarinnar að tryggja góðar og öruggar samgöngur til og frá Bolungarvík.
Útboði lokið
Útboð hefur farið fram og samið verður við verktaka einhvern næstu daga. Ákveðið var árið 2005 að veita fjármagni til gangagerðar og leiðin var valin í kjölfar rannsóknarborana árið 2006. Gangamunninn Bolungarvíkurmegin er ekki langt frá núverandi vegi og hins vegar er munninn skammt frá Seljudal í Hnífsdal. Þau verða 5,1 km að lengd en auk þess þarf að leggja tæplega þriggja km langan veg í allt og steypa 130 m langan vegskála í Bolungarvík og 140 m langan í Hnífsdal.
Fjögur tilboð bárust í verkið að undangengnu forvali, þrjú frá erlendum fyrirtækjum í samvinnu við íslenska verktaka og eitt frá íslenskum verktaka. Lægsta tilboðið áttu Íslenskir aðalverktakar og Marti Contractors frá Sviss sem var uppá tæpa 3,5 milljarða króna eða 88,1% af kostnaðaráætlun. Leonard Nilsen og Sönner ásamt Héraðsverki buðu rúma 3,6 milljarða í verkið, Ístak bauð tæpa 4 milljarða og tilboð Metrostav og Háfells hljóðaði uppá tæpa 6 milljarða króna.
Viðamikil framkvæmd
Umferð um Óshlíð hefur verið kringum 600 bílar á dag að meðaltali yfir árið. Með tilkomu ganganna, sem ráðgert er að opna í júlí 2010, er búist við að umferðin aukist í um þúsund bíla að meðaltali. Er þar bæði gert ráð fyrir eðlilegri aukningu svo og aukningu sem þessi nýja og örugga samgönguleið hefur ótvírætt í för með sér.
Bolungarvíkurgöng er viðamikil framkvæmd. Alls munu koma um 290 þúsund rúmmetrar af jarðefni úr göngunum sjálfum og í þau munu fara um 11 þúsund rúmmetrar af steypu. Síðan þarf að grafa um 40 þúsund rúmmetra af lausum jarðefnum og um 200 þúsund rúmmetrar fara í fyllingar.
Búbót fyrir bæjarfélagið
Þegar samningar liggja fyrir mun verktaki þegar hefjast handa við undirbúning: Koma upp aðstöðu fyrir starfsmenn og tæki og flytja tæki og búnað á staðinn. Gera má ráð fyrir að nokkrir tugir starfsmanna, með starfsstöðvar í Bolungarvík, sinni þessu viðamikla verkefni og eflaust mun eitthvað verða leitað eftir starfskröftum heimamanna. Framkvæmdin mun því strax setja svip sinn á bæjarbraginn í Bolungarvík. Á vel sóttum fundi sem haldinn var í Bolungarvík snemma í janúar kom fram mikil ánægja með þessa framkvæmd og ljóst að heimamenn binda miklar vonir við þessa ótvíræðu búbót.
Ég fagna því mjög að senn hefjast framkvæmdir við Bolungarvíkurgöng. Við höfum á liðnum árum borað og sprengt allmörg jarðgöng í vegakerfi landsins. Öll eru þau umtalsverð samgöngubót í viðkomandi byggðarlagi og hafa vitanlega áhrif langt út fyrir þau.
Bolungarvíkurgöng eru ekki fyrstu jarðgöngin á Vestfjörðum. Saga þeirra hófst með því að sprengt var gat gegnum Arnardalshamar milli Súðavíkur og Skutulsfjarðar. Sú saga mun líka halda áfram eftir Bolungarvíkurgöng þar sem við horfum til ganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar í fyllingu tímans.
– Kristján L. Möller.
Grein þessin birtist m.a. hér á vefnum Víkari.is, www.vikari.is og hér á vef Bæjarins besta, www.bb.is
Til baka | Prenta





