Frétt
Grein eftir Karen Jónsdóttur, formann bæjarráðs Akraness, í Skessuhorni | 04.09.2008
“Frítt” í strætó fyrir nemendur. Hvað þýðir það í raun?
Umræðan um “frítt” í strætó fyrir nemendur hefur orðið stöðugt háværari. Forsaga málsins var sú að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ákváðu á síðasta skólaári að gefa öllum nemendum frítt í strætó. Útgáfa nemendakorta fór fram í gegnum framhaldsskólana og fengu allir nemendur sem stunduðu nám í skóla, sem staðsettur var á höfuðborgarsvæðinu frítt í strætó, óháð búsetu. Kostnaður vegna þessa skrifaðist á fyrrgreind sveitarfélög. Nú í ár verður sá hátturinn hafður á að til þess að nemandi fái “frítt” í strætó þá þarf viðkomandi að hafa lögheimili í því sveitarfélagi sem ætlar að veita þennan afslátt svo kostnaðurinn lendi á réttum stað.
Í dag greiðir Akraneskaupstaður um 30 milljónir króna á ári vegna leiðar 27. Leið 27 var í upphafi tilraunaverkefni og náðist þess vegna sérstaklega góður samningur.
Á fundi sem undirrituð og forráðamenn Akraneskaupstaðar sátu á fyrir skömmu var okkur gert það fullljóst að með næsta samningi yrði Akraneskaupstaður að taka þátt í þeim kostnaði sem hlýst af akstri milli Melahverfis og Reykjavíkur, auk annarra kostnaðarþátta sem ekki hefur verið greitt fyrir. Nýr samningur verður væntanlega undirritaður í byrjun næsta árs.
Verkefnið “frítt” í strætó fyrir nemendur verður framkvæmt á þann veg að sveitarfélögin setja 420 milljónir í pott og er framlag hvers sveitafélags í hlutfalli við íbúafjölda. Ef Akraneskaupstaður tekur þátt í þessu verkefni þá má lauslega áætla að kostnaðurinn yrði 10 til 11 milljónir á ári til viðbótar við núverandi samning. Heildarkostnaður fyrir strætó yrði því að lágmarki 40 milljónir á ári sé horft framhjá þeirri kostnaðaraukningu sem verður með nýjum samningi.
Í umræðunni hefur verið bent á þann möguleika að hægt væri að greiða niður kortin sem nemendur eru að kaupa í dag? Mikið rétt, sá möguleiki er fyrir hendi en þá vaknar upp sú spurning hvort þeir sem eru í námi hér á Akranesi eigi ekki að fá “frítt” í strætó? Á að mismuna nemendum eftir því hvar þeir stunda nám.
Með hliðsjón af því að ekki er vitað á þessari stundu hver kostnaðaraukning Akraneskaupstaðar verður við næsta samning vegna leiðar 27 teljum við ekki forsvaranlegt núna að leggja meira í þetta verkefni.
Að lokum má geta þess að niðurgreiðslur á akstri til og frá Reykjavík er ekki lögbundin þjónusta sem skylt er að veita.
Karen Jónsdóttir
formaður bæjarráðs Akraness
Orðrétt: Grein á vef Skessuhorns, www.skessuhorn.is
Til baka | Prenta





