Frétt
Vefur Bæjarins besta, www.bb.is | 06.03.2009
Gjaldtaka í strætisvagna Ísafjarðarbæjar hefst 16. mars
Gjaldtaka í strætisvagna hefst á mánudagGjaldtaka í strætisvagna Ísafjarðarbæjar hefst aftur á mánudag. Gjaldið verður 280 krónur fyrir fullorðna, 100 krónur fyrir börn og 170 krónur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Eftir sem áður verður ókeypis fyrir börn á grunnskólaaldri í Skutulsfirði og Hnífsdal á skólatíma, eða fram til klukkan 16. Afsláttarkort verða seld í vögnunum og á skrifstofu Ísafjarðarbæjar. Eins og komið hefur fram leita starfsmenn sveitarfélagsins nú allra leiða til að spara í rekstri og auka tekjur og er þessi ákvörðun tekin í samræmi við það. Gjaldfrjáls strætó var tilraunaverkefni sem stóð frá áramótum 2007/2008 og hefur gefist mjög vel með mikilli fjölgun farþega. Þegar ákveðið var að fella niður gjaldið var það gert í tilraunaskyni út árið 2008. Framlenging varð á verkefninu um tvo fyrstu mánuði ársins 2009 en vegna gjörbreyttra aðstæðna þykir nauðsynlegt að hefja aftur gjaldtöku í vagnana.
Að mestu orðrétt heimild: Frétt á vefnum Bæjarsin besta, www.bb.is
Til baka | Prenta





