Frétt
Vefur Hugmyndaráðuneytisins, www.hugmyndaraduneyti.is | 06.03.2009
-Hvað keyptir þú mikið af innfluttri olíu síðasta mánuð? - Fundur um innlenda orku og sjálfbært Ísland
“Hvað keyptir þú mikið af innfluttri olíu síðasta mánuð?” verður þema laugardagsins 7. mars hjá Hugmyndaráðuneytinu sem verður haldinn á Háskólatorgi Háskóla Íslands.
Dagurinn verður í umsjón Framtíðarorku ehf sem skipuleggja meðal annars árlega alþjóðlega ráðstefnu á Íslandi sem kallast Driving Sustainability. Eins og alltaf, þá verður fundurinn öllum opinn og verður formleg dagskrá stutt og hnitmiðuð svo þátttakendur geti notað tímann sem best í að hittast og bera saman bækur sínar.
LAUGARDAGURINN 7. MARS - HÁSKÓLATORG HÁSKÓLA ÍSLANDS

Munt þú keyra á íslenskri orku?
Stjórnendur Framtíðarorku munu kynna tækifærið sem felst í því að gera Ísland að sjálfbæri þjóð í orkumálum. Búast má við spennandi umræðum um eitt stærsta stærsta tækifæri sem íslensk þjóð hefur staðið frammi fyrir síðustu ár: sjálfbær og sjálfstæð þjóð!
Dagskrá
17:00 Stóra myndin og tækifæri Íslands. Guðjón Már Guðjónsson,
Hugmyndaráðuneytið
17:15 Raunverulegt ástand og leið að sjálfbærni fyrir Ísland. Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseta verkfræði- og náttúrvísindasviðs HÍ
17:30 Sjálfstæði – Sjálfbærni. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1
17:45 Sætó-Nýr Strætó. Ari Arnórsson, uppfinningamaður og frumkvöðull
18:00 Intercity raflest Reykjavík-Keflavík. Dagur Hilmarsson, Íslenska Lestarfélagið
18:15 Hlé
18:30 Innlend orka í samgöngum: Rafmagn & Gas. Teitur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Famtíðarorku
18:45 Bensínbíl breytt í rafmagnsbíl. Helgi Þór Ingason, dósent, verkfræðideild HÍ
19:00 Reykjavík 2020. Svanhildur Konráðs – Formaður Framtíðarhóps um helstu tækifæri Reykjavíkurborgar
19:15 Niðurstöður dregnar saman. Pétur Haraldsson, stjórnarformaður Framtíðarorku
Umræður & networking
Rafbílaflotinn nálgast
Nýtt tímabil í samgöngum virðist loksins blasa við þegar rennt er yfir sviðið á alþjóðlegu bílasýningunni í Detroit sem hófst nú á sama tíma og þegar Hugmyndaráðuneytið var stofnsett. Góðar tímasetningar þar á tveimur þörfum málum!

Hertar reglur um útblástur, auknar kröfur um eyðslugrennri farartæki um allan heim, og skilyrt risalán frá yfirvöldum til bjargar bílaiðnaðinum eru meginástæður fyrir rafvæðingu samgangna segir í þessari grein New York Times.
Við Íslendingar höfum fengið nasaþef af hluta þessara þróunar í gegnum samstarfsverkefni íslensku orkufyrirtækjanna og olíurisanum Shell í kringum vetnis strætisvagnana. Hinsvegar hefur einna mesti hraðinn í heiminum í dag verið að eiga sér stað í rafbílum þar sem batterín eru að verða mun öflugri en þau hafa nokkurn tíman verið.
Það úrval rafbíla sem kynnt var á umræddri bílasýningunni í Detroit %20http://www.sciam.com/blog/60-second-science/post.cfm?id=electrified-auto-manufacturers-unve-2009-01-12">er gerð góð grein í Scientific American þar sem litið er á suma þá rafdrifnu smábíla, fólksbíla, sportbíla og sendibíla sem væntanlegir eru á árunum 2010-2012.

Einnig var General Motors að tilkynna í vikunni að rafhlöður í Volt tengiltvinnbílinn sem væntanlegur er frá þeim í lok árs 2010 komi frá LG Chem í Kóreu en verði settar saman í nýrri verksmiðju í Michigan fylki. Þá hefur Rick Wagoner, forstjóri GM, tilkynnt að fyrirtækið muni reisa stærstu rannsóknaraðstöðu heims sem aðeins mun rannsaka nýjustu gerð rafhlaðna. Markmið GM er að öðlast álíka færni í rafhlöðutækni líkt og fyrirtækið hafði í framleiðslu bílvéla á 20. öldinni.
Indverjar ætla sér svo ekki að missa af lestinni, en Indverski rafbílaframleiðandinn Reva hefur tilkynnt að Reva með öflugri gerð líþíum-jóna rafhlaðna komi á Evrópumarkað á þessu ári. Smábíllinn Reva með blýsýrugeymum hefur verið í boði á Íslandi og víðar um nokkra hríð.
Þetta ásamt fleiru er kynnt í áhugaverðu fréttabréfi Framtíðarorku sem hægt er að skrá sig á neðst á heimasíðu þeirra.
Framtíðin er ómenguð og græn
Það er svo sannarlega spennandi framtíðarsýn fyrir Ísland að hugsa sér það að vera ekki háð innflutningi á olíu. Hvað þá þegar hugsað er til framtíðarsýnar allra Íslendinga um raunverulega grænt og tært land. Ræðum þetta nánar laugardagsins 7. mars hjá Hugmyndaráðuneytinu!
Að mestu orðrétt heimild og myndir: Tilkynning á vef Hugmyndaráðuneytisins, www.hugmyndaraduneyti.is
Til baka | Prenta





