Frétt
Vefur Ríkisútvarpsins, www.ruv.is | 08.03.2009
Engar einkaþotur í Reykjavík
Umferð einkaþotna um Reykjavíkurflugvöll hefur snarminnkað síðustu misserin. Umferðin hefur fylgt þróun úrvalsvísitölunnar, nánast samsíða, síðustu 10 árin. Í góðærinu var Reykjavíkurflugvöllur undirlagður af einkaþotum. Umferð þeirra um flugvöllinn var mest árið 2005 þegar kraftur einkavæðingar bankanna hafði verið leystur úr læðingi.
Ekki einungis til að sinna viðskiptaerindum heldur líka til að skemmta sér. Menn skruppu út fyrir landsteinana eina kvöldstund til að fara á fumsýningar, í einkasamkvæmi eða út að borða.Þegar best lét lentu að meðaltali 10 einkaþotur á Reykjavíkurflugvelli á degi hverjum. Íslenskir áhugaflugmenn kvörtuðu undan plássleysi og þingmenn undan hljóð- og hávaðamengun. Ferðum einkaþotna fjölgaði og íslenska úrvalsvísitalan hækkaði.
En nú er öldin önnur. Bankakerfið er hrunið, úrvalsvísitalan einn tíundi af því sem hún var hæst -og á Reykjavíkurflugvelli sést ekki ein einasta einkaþota.
Þegar umferð einkaþota um Reykjavíkurflugvöll er sett upp í graf og borin saman við þróun íslensku úrvalsvísitölunnar yfir sama tíma sést að línurnar eru samsíða.
Orðrétt heimild: Frétt á vef Ríkisútvarpsins, www.ruv.is
Til baka | Prenta





