Frétt

Vefur Samtaka verslunar og þjónustu, | 14.03.2009

Undanþágur frá ítrustu ákvæðum um akstur og hvíldartíma samþykktar í Brussel - Sérstakar aðstæður á Íslandi viðurkenndar

Þær ánægjulegu fréttir bárust frá samgönguráðuneytinu í dag að Fastanefnd EFTA hafi samþykkt undanþágubeiðni Íslands frá ítrustu ákvæðum um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra. Þetta eru mikil og gleðileg tíðindi og ástæða til að fagna þeim.

Sveigjanleiki í aksturstíma atvinnubílstjóra á íslenskum vegum og við íslenskar aðstæður er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál og það sem lagt var til grundvallar undanþágubeiðninni.

Ekki var farið fram á að íslenskir atvinnubílstjórar fengju að vinna meira en kollegar þeirra í Evrópu einungis að þeir fengju aukinn sveigjanleika í aksturstíma sinn innan hvers dags sem tæki mið af aðstæðum á íslenskum vegum og veðurfari.

Sérfræðinganefnd sem fékk það verkefni að leggja mat á undanþágubeiðnina út frá umferðaröryggi komst að þeirri niðurstöðu að við íslenskar aðstæður geti það beinlínis verið til þess fallið að auka streitu hjá bílstjórum að þurfa að komast á áfangastað innan tiltekins tíma. Þá séu aðstæður á vegum á Íslandi þannig að akstur sé alls ekki eins einhæfur og yfirleitt á meginlandinu og því sé síður hætta á að syfja sæki á ökumenn þess vegna.

Samgönguráðherra tók þá ákvörðun í upphafi ársins að niðurstaða ESA í málinu sem var neikvæð yrði ekki endir málsins heldur yrði það látið farið alla leið fyrir Fastanefnd EFTA.

Það er ástæða til að fagna þeirri ákvörðun samgönguráðherra sérstaklega því með þeirri ákvörðun hafði hann afgerandi áhrif á niðurstöðu málsins. Fastanefndin hafnaði alfarið niðurstöðu ESA og samþykkti í öllum atriðum undanþágubeiðnir íslenskra stjórnvalda frá ítrustu ákvæðum um aksturs- og hvíldartíma. 

Ráðuneytið hefur með þessari niðurstöðu heimild til að innleiða reglugerð ESB frá 2006 með meiri sveigjanleika í daglegum akstri en núgildandi reglur gera kröfu um. Ráðuneytið hefur þegar tilkynnt að stofnaður verði starfshópur til að sjá um innleiðingu reglugerðarinnar þar sem ítrustu öryggiskröfum verði fylgt en jafnframt tekið mið af íslenskum aðstæðum. Verður áhugavert að fylgjast með niðurstöðu þeirrar vinnu.

Orðrétt heimild:  Frétt á vef Samtaka verslunar og þjónustu, www.svth


Til baka | Prenta

Veður

Veðurstofa Íslands

Veðrið kl.

Könnun

Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að ríkið styrki strandsiglingar til að draga úr þungaflutningum á vegum.






Blogg á vef Morgunblaðsins, www.mbl.is
Um samgöngur
Um bíla og akstur 

Aðrar samgöngur

Flugfélög - innanlandsflug
Flugfélag Íslands
Flugfélagið Ernir
Mýflug (á ensku)
Eyjaflug
Flugfélagið Geirfugl
Norðurflug
Suðurflug (á ensku) 

Flugfélög - utanlandsflug
Atlanta
Icelandair
Iceland Express
Bláfugl (vöruflutningar)

Flugvellir innanlands
Sjá vef Flugstoða

Ferjur
Herjólfur
Breiðafjarðarferjan Baldur
Hríseyjarferjan Sævar
Grímseyjarferjan Sæfari 
Norræna

Flutningar á sjó - millilanda
Eimskip                                                                 
Atlantsskip
Samskip

Almenningssamgöngur á landi
Strætó á höfuðborgarsvæðinu
Ferðaþjónusta fatlaðra
Akranes
Ísafjarðarbær
Akureyri                                                                    
Fljótsdalshérað                                 
Reykjanesbær
Flugrútan (Kefl.v.flugv.)
SBA-Norðurleið
SBK-Reykjanesbær
Vesturland (Trex)
Norðurland (Trex)
Austfirðir (Austfjarðaleið)
Austurleið (Selfoss o.fl.)

Vefir sem miðla ferðaupplýsingum
Samferða.net
Farþegi.is

Leigubílar
BSR
Hreyfill
Skutlan

Bílaleigur
Alp bílaleiga
Átak bílaleiga
Avis - bílaleiga
Bílaleiga Flugleiða Hertz
Budget bílaleiga
Europcar bílaleiga
Bílaleiga Akureyrar

Flutningar á landi
Flytjandi
Íslandspóstur
Landflutningar

Samgöngumiðstöðvar o.fl.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Bílastæði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Bifreiðastöð Íslands (Umferðarmiðstöðin)
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
Hvalfjarðargöng (Spölur hf.)
Faxaflóahafnir
Hafnarfjarðarhöfn   
Hafnir Ísafjarðarbæjar

Samgöngumannvirki í uppbyggingu
Bakkafjöruhöfn (Vestmannaeyjar)
Héðinsfjarðargöng 
Hringvegur við Hornafjörð
Miklabraut / Kringlumýrarbraut 
   - skýrsla um framtíðarlegu 
Reykjavíkurflugvöllur
   - skýrsla um framtíðarlegu 
Sundabraut

Ganga, hjólreiðar o.fl.
Samtök um bíllausan lífsstíl
Ganga.is
Landssamtök hjólreiðamanna
Hjólreiðafélag Reykjavíkur
Hjólamenn.is

 

 

 

 

 

Færð á vegum

Leita

Leitarvél

Flug frá Keflavík | Brottfarir

AEU50107:00London Gatwick
FI79207:30Liege
FI52007:25Frankfurt Main
FI54207:40Paris Charles De Gaulle
FI45007:40London Heathrow
FI20407:45Copenhagen

Textavarp

Flug til Keflavíkur | Komur

SK478710:50Oslo Gardermoen
AEU50213:50London Gatwick
AEU90214:10Copenhagen
FI79314:30Liege
FI45115:00London Heathrow
FI50315:10Amsterdam Schiphol

Textavarp

Flug frá Reykjavík | Brottfarir

Gat ekki lesið flugupplýsingar

Textavarp

Flug til Reykjavíkur | Brottfarir

Gat ekki lesið flugupplýsingar

Textavarp

Veldu ódýrasta flugið

Leiðakerfi Strætó

Nýtt leiðarkerfi

Bensínverð


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli