Frétt
Vefur Samtaka verslunar og þjónustu | 14.03.2009
Veggjaldahugmyndir ESB afgreiddar í Evrópuþinginu
Sagt hefur verið frá tíu ára gömlum hugmyndum Evrópusambandsins um notkunargjöld fyrir samgöngukerfi og þeirri niðurstöðu þeirra frá í júlí 2008 að þær skyldu útfærðar eingöngu með veggjöldum á flutningabíla. Þ.e. að hugmyndir þeirra um að notendur greiði fyrir samgöngukerfin hafi endað í niðurstöðu um að gera breytingar á tilskipun um veggjöld á flutningabíla og þannig einungis verið útfærðar á landflutningagreinina. Ekki náðist samstaða um frekari útfærslur notendagjalda.
Tillögur Framkvæmdastjórnarinnar frá í júlí hafa sætt mikilli gagnrýni í Evrópuþinginu og margar breytingatillögur verið lagðar fram. Í vikunni samþykkti þingið að aðildarlöndin fái heimild til útfærslu veggjalda á flutningabíla vegna umferðarþunga og hávaða en ekki vegna kolefnisútblásturs. Þeim er ekki gert skylt að viðhafa þessi veggjöld heldur fá heimild til þess.
Endanleg útfærsla og ákvörðun um málið á eftir að fara fyrir Evrópuráðið.
Orðrétt heimild: Frétt á vef Samtaka verslunar og þjónustu, www.svth.is
Til baka | Prenta





