Frétt
Vefur Vegagerðarinnar, www.vegag.is | 24.03.2009
Mörg lág tilboð í Vopnafjarðartengingu - Tvö tilboð upp á rétt rúm 50 prósent
Alls bárust 13 tilboð í lagningu Norðausturvegar (85), Bunguflóa - Vopnafjarðar eða tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn. Einungis tvö tilboðanna voru hærri en áætlaður verktakakostnaður.
Hektar ehf í Reykjavík áttu lægsta tilboðið upp á rúmar 738 milljónir króna, en tilboð Háfells ehf í Reykjavík var litlu hærra eða tæpar 740 milljónir króna. Áætlaður verktakakostnaður var rúmar 1.440 milljónir króna.
Þessi tilboð eru því 51,3 og 51,4 prósent af áætluðum verktakakostnaði líkt og sjá má hér á vef Vegagerðarinnar.
Gerð Norðausturvegar, frá Bunguflóa að Vopnafirði og hluta Hofsárdalsvegar. Norðausturvegur verður um 30,4 km langur og liggur frá Bunguflóa, um Vesturárdal að þéttbýlinu á Vopnafirði. Hofsárdalsvegur (920), liggur frá nýja Norðausturveginum í Vesturárdal yfir að Árhvammi í Hofsárdal, og verður hann 6,8 km langur. Endurbæta þarf 0,85 km af Skógavegi (914), frá Vesturárdalsvegi vestur fyrir tengingu við Torfastaðaveg. Nýjar tengingar verða um 1,6 km að lengd.
Að mestu orðrétt heimild: Frétt á vef Vegagerðarinnar, www.vega.is
Sjá má yfirlit um tilboðið eins og það birtist á vef Vegagerðarinnar hér:
Norðausturvegur (85), Bunguflói - Vopnafjörður
Tilboð opnuð 24. mars 2009. Gerð Norðausturvegar, frá Bunguflóa að Vopnafirði og hluta Hofsárdalsvegar. Norðausturvegur verður um 30,4 km langur og liggur frá Bunguflóa, um Vesturárdal að þéttbýlinu á Vopnafirði. Hofsárdalsvegur (920), liggur frá nýja Norðausturveginum í Vesturárdal yfir að Árhvammi í Hofsárdal, og verður hann 6,8 km langur. Endurbæta þarf 0,85 km af Skógavegi (914), frá Vesturárdalsvegi vestur fyrir tengingu við Torfastaðaveg. Nýjar tengingar verða um 1,6 km að lengd.
Helstu magntölur eru:
|
Bergskering |
15.400 |
m3 |
|
Önnur skering |
398.800 |
m3 |
|
Fylling + sig |
678.800 |
m3 |
|
Fláafleygar |
178.000 |
m3 |
|
Ræsalögn |
3.844 |
m |
|
Endafrágangur ræsa |
246 |
stk. |
|
Neðra burðarlag |
169.700 |
m3 |
|
Efra burðarlag |
62.000 |
m3 |
|
Einföld klæðing |
556.000 |
m2 |
Lagningu slitlags á Norðausturveg skal lokið fyrir 15. ágúst 2011.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 2012.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
| Verktakar Magni ehf., Kópavogi | 2.763.243.000 | 191,9 | 2.025.064 |
| Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 1.699.035.000 | 118,0 | 960.856 |
| Áætlaður verktakakostnaður | 1.440.210.000 | 100,0 | 702.031 |
| Suðurverk hf., Kópavogi | 1.345.541.390 | 93,4 | 607.362 |
| Árni Helgason ehf., Ólafsfirði og G.V. Gröfur ehf., Akureyri | 1.195.108.900 | 83,0 | 456.929 |
| Ístak hf., Reykjavík | 1.185.386.358 | 82,3 | 447.207 |
| Héraðsverk ehf., Egilsstöðum | 1.074.810.000 | 74,6 | 336.631 |
| Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf., Selfossi | 979.551.000 | 68,0 | 241.372 |
| Klæðning ehf., Hafnarfirði | 949.000.000 | 65,9 | 210.821 |
| Skagfirskir verktakar hf., Sauðárkróki | 899.882.000 | 62,5 | 161.703 |
| K N H ehf., Ísafirði | 855.844.100 | 59,4 | 117.665 |
| Ingileifur Jónsson ehf., Reykjavík | 844.169.000 | 58,6 | 105.990 |
| Háfell ehf., Reykjavík | 739.691.500 | 51,4 | 1.512 |
| Hektar ehf., Reykjavík | 738.179.500 | 51,3 | 0 |
Til baka | Prenta





