Frétt
Vefur Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is | 29.03.2009
Ályktað um samgöngumál á landsfundi Sjálfstæðisflokksins
Svohljóðandi ályktun um samgöngumál var samþykkt á landsfundi Sjálfstæðisflokkins 29. mars sl.Ályktun um samgöngumál
Samgöngukerfi landsins hefur tekið miklum stakkaskiptum undanfarin ár. Aðgerðir hafa miðað að því að treysta byggð í landinu og gera samgöngur öruggari og hagkvæmari. Ráðist hefur verið í umfangsmiklar vegaframkvæmdir og jarðgangagerð ásamt verulegum umbótum á sviði hafna og flugvalla. Áhersla hefur verið á bætt umferðaröryggi og umferðarmenningu.
Samgöngur á landi
• Þó að miklum fjármunum hafi verið varið í uppbyggingu samgangna á landi vantar enn verulega upp á að grunnnet samgangna á landi geti talist viðunandi m.t.t. byggðaþróunar, atvinnulífs og samkeppnishæfni byggðarlaga til búsetu og atvinnuuppbyggingar. Unnið skal áfram eftir Samgönguáætlun 2006. Standa þarf vörð um að niðurskurður komi ekki niður á þjóðhagslega hagkvæmum verkefnum eins og mikilvægum samgöngubótum.
• Við áframhaldandi uppbyggingu samgangna á landi eru eftirfarandi áherslur og markmið:
• Við forgangsröðun samgöngumannvirkja verði tekið tillit til umferðarmagns, öryggis og hagkvæmni. Líta þarf sérstaklega til alþjóðlegra staðla um öryggi og gæðaflokkun vega. Sérstaklega skal leggja áherslu á framkvæmdir sem eru mannaflsfrekar.
• Að líta sérstaklega til möguleika á annars konar fjármögnun samgöngumannvirkja en beinna fjárframlaga af fjárlögum.
• Að horfa til styttingar vegalengda og aukinnar burðargetu vegakerfisins, bæði innan fjórðunga og milli landssvæða.
• Að staðið verði við jarðgangnaáætlun sem hefur verið samþykkt. Útboð Norðfjarðarganga verði klárað og haldið verði áfram undirbúningsvinnu við Dýrafjarðar- og Vaðlaheiðargöng.
• Að ljúka við lagningu bundins slitlags á þjóðvegi 1 innan 4 ára.
• Að unnið verði markvisst að því að fækka malarvegum og einbreiðum brúm á stofnvegum og tengivegum.
• Að unnið verði að uppbyggingu stofnvega til og frá höfuðborgarsvæðinu m.t.t. umferðarþunga..
• Að unnið verði að uppbyggingu stofnvega á höfuðborgarsvæðinu m.t.t. umferðarmagns, afkastagetu , forgangs almenningssamgangna og mengunar. Jafnframt að unnið verði markvisst að gerð Sundabrautar.Allt stefnir í aukna sókn ferðamanna að helstu náttúruperlum landsins. Landsfundur telur að sett verði fram áætlun í uppbyggingu ferðamannavega og aðgengi að vinsælum svæðum. Unnið verði markvisst út frá þeirri áætlun með það að markmiði að ferðamenn geti skoðað landið á öruggan hátt. Náttúruvernd skal höfð að leiðarljósi við slíkar framkvæmdir.
• Að unnið verði heildstætt að uppbyggingu hjólreiða- og göngustíga í þéttbýli og milli stórra þéttbýlisstaða. Fella skal niður alla tolla og vörugjöld af reiðhjólum og öðrum sambærilegum mengunarlausum farartækjum.
• Að ýtt verði undir notkun einkabíla og almenningsvagna sem knúnir eru vistvænni orku,
• Að almenningssamgöngur verði efldar þar sem því verður við komið.Að jaðarbyggðir verði tengdar við stærri atvinnusvæði með viðeigandi hætti.
Samgöngur á sjó
2. Vegna landfræðilegrar legu Íslands verða samgöngur á sjó ætíð mikilvægur þáttur í samgöngum þjóðarinnar og vill landsfundur að vel verði að þeim staðið. Landsfundur hvetur til frekari sameininga hafna á landsvísu. Eftirfarandi áherslur og markmið eru varðandi samgöngur á sjó og hafnarmannvirki:
• Að samkeppnisstaða flutningaleiða á landi og sjó verði jöfnuð eins og kostur er.
• Að siglingaleiðum við suðvesturland verði breytt að nýju. Greint verði annars vegar á milli kaupskipa sem flytja hættulegan farm eins og eldsneyti og geislavirk efni og hins vegar farþega- og flutningaskipa. Skilgreina þarf siglingaleiðir norðan við landið með tilliti til flutninga á hættulegum farmi.
• Að könnuð verði þjóðhagsleg hagkvæmni þess að hefja strandsiglingar að nýju.
• Áfram verði unnið á forsendum langtímaáætlunar um öryggismál sjófarenda. Fagnaðarefni er hversu góður árangur hefur náðst í öryggismálum sjófarenda. Standa verður vörð um Slysavarnaskóla sjómanna.
• Landsfundur Sjálfstæðisflokksins lýsir mikilli ánægju með uppbyggingu þyrluflota Landhelgisgæslunnar undir öruggri stjórn Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Landsfundurinn krefst þess að þyrluflotanum sé haldið út enda er hann sjúkrabifreiðar sjómanna sem og allra landsmanna sem vinna hættuleg störf allt í kringum Ísland.
• Að skattaumhverfi kaupskipa sé með þeim hætti að kaupskipum á íslenskri skipaskrá fjölgi. Stutt verði áfram við ferjusiglingar milli Seyðisfjarðar og meginlands Evrópu.
• Áfram verði unnið að bótum á samgöngum til og frá Vestmannaeyjum.
• Stutt verði við ferjusiglingar um Breiðafjörð og til Grímseyjar.
• Að ferjuleiðir verði skilgreindar sem hluti af þjóðvegakerfi Íslendinga.
Samgöngur í lofti
3. Flugsamgöngur eru Íslendingum afar mikilvægur þáttur, bæði innanlands og milli landa.
4. Eftirfarandi áherslur og markmið eru varðandi samgöngur í lofti:
• Að innanlandsflugi verði haldið úti með svipuðu sniði og verið hefur en stuðla skal að samkeppni í innanlandsfluginumeð því að aðstaða fyrir nýja rekstraraðila fáist á Reykjavíkurflugvelli. .
• Áfram verði stutt við flugleiðir til jaðarbyggða, þó þannig að hagkvæmni sé gætt í hvívetna.
• Að Reykjavíkurflugvöllur gegni áfram lykilhlutverki sem miðstöð innanlandsflugs.
• Að hafist verði handa viðuppbyggingu samgöngumiðstöðvar í Reykjavík hið fyrsta og henni lokið á sem skemmstum tíma.
• Að Keflavíkurflugvöllur geti áfram þróast sem miðstöð millilandaflugs á Íslandi. Varamillilandaflugvellirnir í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum verði áfram í uppbyggingu.
• Að rýmka heimildir flugvalla á landsbyggðinni, þar sem aðstæður leyfa, til að sinna millilandaflugi og auka öryggi, atvinnuuppbyggingu og möguleika í ferðaþjónustu
• Að bæta enn frekar rekstrarumhverfi íslenskra flugfélaga þannig þau geti áfram dafnað í alþjóðlegri samkeppni
• Að vinna að því að Ísland auki þátttöku sína í stjórnun alþjóðlegs loftrýmis umhverfis landið.
Orðrétt heimild: Frétt á vef Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is
Til baka | Prenta





