Frétt
Vefurinn Skessuhorn.is | 02.04.2009
Lítil nýting strætóferða úr Borgarnesi veldur vonbrigðum
Á fundi í byggðaráði Borgarbyggðar í síðustu viku voru kynntar niðurstöður úr farþegatalningu á leið 58 hjá Strætó, en það er leiðin sem ekin er frá Reykjavík, um Hvalfjarðarsveit og í Borgarnes. Talning farþega fór fram dagana 24. febrúar til 2. mars sl. Í ljós kom að einungis 30-45 farþegar nota ferðirnar á degi hverjum og þar af er mest nýting þeirra um helgar. Hlutur Borgarbyggðar af samningnum er 13-14 milljónir á ári og þykir það há upphæð miðað við þetta litla sætanýtingu. “Ef farþegafjöldi eykst ekki þá veikist grunnurinn fyrir áframhaldi þessarar þjónustu a.m.k. fyrir okkur í Borgarbyggð og líklega einnig Hvalfjarðarsveit. Við þurfum að fjölga farþegum um a.m.k. helming ef þetta á að ganga upp hjá okkur,” sagði Páll S Brynjarsson sveitarstjóri í samtali við Skessuhorn. Á fundi byggðaráðs var samþykkt að fela sveitarstjóra að ræða við fulltrúa Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar um stöðu málsins, en þessi þrjú sveitarfélög eru samningsaðilar við Strætó bs um þjónustuna.
Að mestu orðrétt heimild: Frétt á vefnum Skessuhorn.is
Til baka | Prenta





